|
|
05.05.2007 16:59:46 / ghsghs
Flottur, nú í samræmdu prófunum:

Í hvaða skóla ætli hann fari í haust?
»
02.03.2007 10:02:37 / ghsghs
Ég er búin að færa bloggið mitt á nýjan stað:
http://blogg.visir.is/gudrun2007
»
27.02.2007 10:58:50 / ghsghs
Ágætis blað Sport með Fréttablaðinu í dag. Það getur ábyggilega
uppfyllt stórt gat á markaðnum með því að sinna öðrum
íþróttagreinum en þessum hefðbundnu boltagreinum, til dæmis sundi,
frjálsum og hlaupum. Ég held að sá hluti markaðarins hafi verið
sveltur hingað til og ég tek þessari nýjung allavega fagnandi.
Vonandi er búið að ráða bót á sveltinu. Eða þannig.
»
26.02.2007 14:56:10 / ghsghs
Ég horfði á viðtalið hennar Evu Maríu við Illuga Jökulsson í
Kastljósinu á sunnudagskvöld og hvikaði ekki frá sjónvarpstækinu
fyrr en viðtalið var búið. Verð að segja að ég hélt fullri
einbeitingu enda áhugaverður viðmælandi. Hefði samt gjarnan vilja
fá meiri umræðu um blaðamennsku og fjölmiðlun og aðeins minni um
"uppgjörið" og áfengisdrykkju Jökuls Jakobssonar. Gott viðtal samt
og frábært val á viðmælanda.
Ég las viðtalið í Mogganum við Svein Rúnar Sigurðsson, þann
sem samdi lagið sem Eiríkur Hauksson flytur í Eurovision í
Helsinki. Mjög áhugavert viðtal verð ég að segja, þó ekki væri
vegna þess að við Sveinn Rúnar deilum sameiginlegum áhuga á
Finnlandi og Rússlandi og Austur-Evrópu. Hefði þó gjarnan viljað fá
meiri bissness-upplýsingar, þ.e. nánari útlistanir á
fyrirtækinu sem hann er að byggja upp í Ungverjalandi, út á
hvað starfsemin gengur, hvar það fer á markað, hver veltan er og
svo framvegis.
Fór svo út á vídeóleigu í gærkvöldi og leigði bresku myndina
Kinky Boots. Skrambi góð skemmtun.
Þetta voru hápunktar helgarinnar í fjölmiðlaneyslu minni. 
»
22.02.2007 22:08:11 / ghsghs
Finnst að sumu leyti eins og ég búi í frumstæðu
útnáraþjóðfélagi þar sem öfgarnar og ofsatrúin ráða ríkjum. Það er
sú tilfinning sem ég hef þessa dagana.
»
17.02.2007 20:10:40 / ghsghs
Blaðamannaverðlaunin 2006 voru afhent á Hótel Holti í dag.
Vinnufélagi minn, Auðunn Arnórsson, fékk verðlaun fyrir greinaflokk
um Ísland og ESB, Jóhannes Kr. Kristjánsson, Kompás, fékk verðlaun
fyrir rannsóknarblaðamennsku, og Davíð Logi Sigurðsson,
Morgunblaðinu, fékk verðlaun fyrir greinaskrif um alþjóðamál. Þeir
eru allir vel að verðlaununum komnir og ég óska þeim innilega til
hamingju.
Ég hef verið að velta því fyrir mér síðustu daga að mér
þætti skemmtileg viðbót við verðlaunaafhendinguna að efna til
fundar og fá verðlaunahafana til að miðla af reynslu sinni og segja
frá vinnubrögðum sínum við verðlaunaverkefnin. Þannig þætti mér
afskaplega áhugavert að heyra Davíð Loga segja frá vinnslu greina
sinna um Guantanamo frá upphafi til enda, hvernig hann undirbjó
ferðina, hvernig hann skipulagði vinnuna og svo framvegis. Held að
margir blaðamenn geti lært af því.
Þannig er þetta gert á hinum norðurlöndunum. Þar er ekki bara
verðlaunaafhending og djamm, það eru líka erindi um verkefnin,
greinarnar/þættirnir ræddir fram og tilbaka og verðlaunahafarnir
svara spurningum. Held að slík umræða geti nýst mönnum best upp á
framfarir.
»
14.02.2007 22:08:11 / ghsghs
Er svo heppin að vera búin að sjá fyrsta tölublað af nýja
tímaritinu Krónikan og verð að segja, þetta er sennilega fallegasta
tímaritið á markaðnum í dag. Útlitið virkar létt og fallegt og
smart. Ég er því miður ekki búin að lesa blaðið en mér
virðist sama gilda um efni þess, það virðist
vera létt og leikandi, stuttir textar og skemmtilegir en því
miður ekki eins fréttatengt og ég bjóst við. Það er eins og gengur
og kannski er það ekki einu sinni rétt hjá mér því ég er ekki búin
að lesa blaðið!
Blaðið í heild virkar aðgengilegt og þægilegt til lestrar. Mér
finnst þetta töff blað. Lofar góðu með framhaldið!
»
11.02.2007 20:01:38 / ghsghs
Hjó eftir því í janúartölublaði Rotary Norden að ritstjóri
Sundsvalls Tidning, Kjell Carnbro, segist hafa ákveðið að standa
fyrir utan Rotary hreyfinguna. Carnbro segist hafa velt þessu mikið
fyrir sér og komist að þeirri niðurstöðu að þetta tvennt gæti
rekist á, annars vegar aðhaldshlutverk fjölmiðlanna og hinsvegar
innganga í Rotary og því ákveðið að standa fyrir utan. Hann tekur
fram að hann myndi sennilega líta á forystu/stjórnarþátttöku í
stóru og áberandi íþróttafélagi með sama hætti.
Þetta finnst mér athyglisvert.
Kári Jónasson, minn fráfarandi ritstjóri og fyrrverandi
fréttastjóri, er í viðtali í Fréttablaðinu í morgun. “Ég hef tekið
eftir því að unga fólkið treystir mjög á netið og tölvurnar en það
kemur ekkert í staðinn fyrir persónuleg tengsl. Blaðamenn eiga að
stefna að því að ná persónulegu og góðu sambandi við embættismenn,
stjórnmálamenn og annað lykilfólk í samfélaginu. Ekkert net kemur í
staðinn fyrir að kynnast fólki,” segir hann þar.
Þessir menn eru ekki að tala um nákvæmlega sama hlutinn, annar
um Rotary og hinn um netið í starfi ungra blaðamanna. Það er sama,
það eru ákveðin líkindi þarna á milli.
Þegar ég var í í Norræna blaðamannaháskólanum í Árósum haustið
2003 tók ég eftir því að skoðanir um það hvort blaðamenn gætu verið
virkir í hreyfingu á borð við Rotary voru mjög skiptar. Sumir töldu
í lagi - í góðu lagi - að vera virkir í Rotary og bentu á að það
aflaði þeim bara sambanda. Aðrir töldu það fráleitt; þetta tvennt
færi ekki saman, blaðamennska og Rotary.
Þetta hefur stundum verið mér umhugsunarefni. Geta blaðamenn
verið virkir í svona hreyfingu? Hingað til hef ég alltaf svarað
þessari spurningu neitandi. Aðhaldshlutverkið hefur skipt mig máli.
En hvenær er aðhaldshlutverkinu stefnt í voða og hvenær ekki? Það
er spörningin...
»
10.02.2007 20:21:37 / ghsghs
Rússland og allt rússneskt er mér einkar hugleikið þessa dagana.
Á göngutúr kringum Ástjörnina í vikunni rifjaðist upp fyrir mér
frásögn úr Putin’s Russia eftir Önnu Politkovskaju, blaðakonuna sem
var myrt fyrir utan heimili sitt í haust. Anna birti þar viðtal við
háttsettan, jafnvel æðsta, stjórnanda hátæknilegrar
lykil-flotastöðvar Rússa við austurströnd Rússlands og sagði
frá því hvað hann hafði frámunalega slæm kjör og væri samt æðsti
yfirmaður í hernum. Anna nefndi sem dæmi að hann fengi eina máltíð
á dag í vinnunni og tæki hana með sér heim á kvöldin til að skipta
henni á milli fjölskyldunnar. Sjálfur væri hann vannærður.
Stórmerkileg frásögn og aðeins ein af ákaflega mörgum áhugaverðum
sögum.
Frásögnin af flotaforingjanum (eða hvert sem stöðuheiti hans nú
var) kom mér aftur í hug þegar ég sá í Fréttablaðinu í dag að
Gorbatjov, fyrrum leiðtogi Sovétríkjanna, væri byrjaður með
mánaðarleg skrif í blaðið. Það er frábært og kannski byrjunin
á einhverju meiru í þessum anda; hver veit. Það væri til dæmis hægt
að kaupa og birta gagnrýnar greinar blaðamanna á Novaja Gazeta,
blaðinu sem Anna vann á. Slíkar greinar birtast á fréttavef
Aftonbladet og eru oftast hrein unun að lesa. Þetta held ég að væri
afskaplega áhugavert efni fyrir íslenska lesendur og myndi opna
nýjar víddir í erlendum fréttaflutningi og þá sérstaklega af
málefnum Rússlands enda hafa blaðamenn Novaja Gazeta reynt að halda
starfi Önnu Politkovskaju áfram eins og sjá má hér:
http://www.aftonbladet.se/vss/nyheter/story/0,2789,947240,00.html
Meira en þrettán blaðamenn hafa verið myrtir í Rússlandi
eftir að Vladimir Putin varð forseti, að sögn Aftonbladet, þar af
þrír blaðamenn Novaja Gazeta frá árinu 2000. Igor Domnikov
rannsóknarblaðamaður var myrtur árið 2000, Jurij Sjtjekotjichin
þingfréttaritari var myrtur 2003 – talið að eitrað hafi verið fyrir
honum - og Anna Politkovskaja haustið 2006. Hún sérhæfði sig í
norðurhluta Kákasus og Tsétséníu. Þetta er stór tollur og hlýtur að
segja ýmislegt um ástandið í þessu stóra og áhugaverða landi.
»
08.02.2007 14:11:02 / ghsghs
Bæði Helsingin Sanomat, stærsta dagblaðið í Finnlandi, og
Kauppalehti, stærsta viðskiptablaðið, fjalla um kaup Exista á
tryggingafélaginu Sampo á fréttavef sínum í morgun. Fyrir utan
helstu staðreyndir sem hafa birst í fjölmiðlum hér heima greinir
Kauppalehti frá þeim vangaveltum að Kaupþing hafi meðal
annarra fjármagnað kaup breska fjárfestisins Robert Tchenguiz,
sem fæddur er í Íran, síðasta vor þegar hann keypti hlutinn á
17 evrur. Kaupþing kaupir nú á 22,2 evrur.
Skrif Helsingin Sanomat eru á svipuðum nótum. Greint er frá
helstu staðreyndum og ekkert mat í sjálfu sér lagt á kaupin. Ekki
ennþá allavega. Nefnt að litlar upplýsingar liggi fyrir enn sem
komið er og því sé ekki hægt að fara út í neinar
bollaleggingar. Kaupin eru hinsvegar sett í samhengi og
nefnt að verðmæti kaupanna nú séu um 1,23 milljarðar evra eða
fjórföld kaup Glitnis á FIM um daginn.
Stærstu hluthafar Sampo eru nú, skv. Helsingin Sanomat: Exista
með 15,48 prósent, finnska ríkið með 13,6 prósent og
lífeyrissjóðurinn Ilmarinen með 8,5 prósent.
Á umræðuþráðum Kauppalehti mátti sjá strax í
morgun meiningar áhugamanna um fjárfestingar "Íslendinga" og
talað um Rússagull í því sambandi. Skondið að þessi umræða um
Rússagullið komi sífellt upp. Hún ætlar seint að vera kveðin
niður og virðist alveg sama hvaða Íslendingar eru á ferð og hvar,
þeir eru allir settir undir einn hatt. Hatt Rússagullsins.
»
07.02.2007 21:09:09 / ghsghs
Hufvudstadsbladet fjallar um sókn Íslendinga á
finnska markaðnum í leiðara í dag. Hufvudstadsbladet
segir að Finnar hafi haft áhyggjur af sókn Íslendinganna, til dæmis
eftir að Hannes Smárason lagði til að laun flugliða hjá Finnair
yrðu lækkuð og lýsti þeirri skoðun sinni fyrir nokkru að finnska
ríkið ætti að selja hluti sína í Finnair. Þessar yfirlýsingar þóttu
stuðandi og bera vott um frekju. En í rauninni séu hann og hinir
Íslendingarnir ekkert frekari en Finnarnir voru í Svíþjóð fyrir
rúmum 20 árum.
Hufvudstadsbladet líkir útrás Íslendinganna á norðurlöndunum við
kaup Finna um miðjan níunda áratuginn þegar finnsku félögin Neste,
Nokia, Partek, Rauma-Repola og Wärtsilä keyptu félög í Svíþjóð og
notuðu Svíþjóð sem stökkpall út í heim. Husis rifjar upp að
finnskur athafnamaður hafi sagt frá því hvernig finnski dugnaðurinn
sigraðist á sænsku tregðunni. Margir litlir menningarárekstrar
hafi átt sér stað en allt hafi gengið vel. Eftir viðtal við Kari
Kairamo, stjórnanda Nokia, árið 1987 var finnska
stjórnunarstílnum lýst með þremur orðum, "management by perkele".
Finnsku fyrirtækin hafi víkkað út heimamarkaðinn með því að halda í
vesturvíking. Menn hafi keypt verksmiðjur og fyrirtæki. Finnland
hafi verði lítið þekkt. Útrás á alþjóðamarkað hafi tekið við sér og
gengið vel.
Ísland er nú á sömu leið og Finnland var, bara tíu árum á eftir
Finnum. Leiðarahöfundur Hufvudstadsbladet telur rökrétt að
Íslendingar haldi á alþjóðamarkað gegnum norðurlöndin. Þetta sé þó
ekki laust við áhættu. Íslendingar eigi við vanda að stríða á
heimamarkaði, til dæmis með stýrivexti upp á 14,25 prósent.
Fjárfestarnir séu ekki ónæmir fyrir vandanum heima. Þeir séu oft
svo skuldugir að veldur áhyggjum. En þeir geri rétt í því að vaxa á
hinum norðurlöndunum svo lengi sem efnahagslífið gangi vel
heima.
Þýtt og endursagt úr Hufvudstadsbladet, www.hbl.fi, miðvikudaginn 7. febrúar 2007.
Sorrí, fann í fljótu bragði enga áhugaverða leiðara úr öðrum
finnskum blöðum.
P.S.: Perkele er blótsyrði á finnsku. Finnar nota það mikið.
»
06.02.2007 22:35:48 / ghsghs
Að mörgu leyti hefur þessi rúmi mánuður sem liðinn er af árinu
2007 verið mánuður ofbeldisins, í fréttum að minnsta kosti.
Á aðeins nokkrum vikum fyrir og eftir áramótin hafa
stærstu fréttirnar á heimavelli verið af ofbeldismálum, fyrst í
Byrginu sem byrjaði náttúrulega í desember, svo meðal
heyrnarlausra, fréttir af barnaníðingum og nú síðast úr
Breiðuvík. Ár ofbeldisins - mánuðir ofbeldisins eða
ofbeldisvikurnar 2007. Ekki satt?
Eða er þetta kannski einhver vetrar-kosningaskjálfti? Kannski að
hluta til viðkvæm mál að koma upp á yfirborðið sem eru aðeins
undanfari í kosningabaráttunni? Stjórnmálamennirnir hafa keppst við
að láta að sér kveða hefur mér heyrst, þar á meðal
félagsmálaráðherra sem hefur náttúrulega haft nóg á sinni könnu og
tekið fagmannlega á málum. Eins og kosningar séu í nánd hefur
mér sýnst. Svolítið "popúlistískt".
Hægt að kalla þetta lognið á undan storminum?
Eða stormurinn kannski þegar skollinn á?
»
06.02.2007 00:26:09 / ghsghs
Umræðan um ofbeldið og ósómann sem ungir drengir urðu að þola í
Breiðavík á síðustu öld er af hinu góða og full ástæða til að
þakka þeim mönnum sem hafa komið fram og greint frá reynslu sinni.
Þeir eiga heimtingu á afsökunarbeiðni eins og að minnsta kosti einn
þeirra hefur farið fram á. Minna má það ekki vera. Íslenskt
þjóðfélag skuldar þessum mönnum.
Mér þykir líklegt að það eigi ýmislegt eftir að heyrast um þetta
mál því að það er herfilegt áfall fyrir íslenskt þjóðfélag - um
leið og það er gleðilegt að það komi upp á yfirborðið. Málið hlýtur
að halda áfram í umræðunni og að lokum hljóta þessir
menn að fá bætur. Það er þannig sem þetta myndi virka
erlendis - afsökunarbeiðni og bætur eftir sérstaka lagasetningu -
og þannig á það að vera hér líka.
Kannski sjá einhverjir þingmenn sóma sinn í að taka málið
upp?
»
02.02.2007 17:14:10 / ghsghs
Sérstök forsíðufréttin á Mogganum í morgun, "Milduðu dóminn" og svo
fimm andlitsmyndir af Hæstaréttardómurum. Hm... svolítið ómoggalegt
einhvern veginn því þetta virkar nánast eins
og fimmmenningarnir séu sakamenn. Ég hefði gjarnan viljað vita
hvaða umræða fór fram á ritstjórn Moggans áður en þessi ákvörðun
var tekin því þessi uppsetning virkar svo óvenjuleg og spes.
»
30.01.2007 22:27:34 / ghsghs
Mér finnst í meira lagi undarlegt að skipa Moggaritstjóra í
stjórn Norræna blaðamannaháskólans NJC. Skil ekki hvað
menntamálaráðherra og Mogginn eru að pæla nema náttúrulega þetta sé
spurning um bitlinga eða óformlegt bandalag af einhverju tagi. Sem
það sjálfsagt er því það er engin skynsamleg skýring á því að fara
ekki að óskum Blaðamannafélagsins.
Varla kemur nokkrum manni á óvart að mér finnst
gott hjá Örnu formanni Blaðamannafélagsins að senda
menntamálaráðuneytinu bréf.
»
Síður: 1 2 3 ... 30
|
|